Ég slysaðist til að renna yfir eintak af
Morgunblaðinu frá 26. mars 1986 á
tímarit.is.
Á meðal efnisatriða þar:
- Bandaríski herinn skýtur loftskeytum yfir Líbýu. Almennar áhyggjur af ástandinu við Líbýu.
- Konunglegt brúðkaup í Bretlandi.
- Kjaradeilur og yfirvofandi verkföll.
- Bréf í Velvakanda um tregðugleika við endurskoðun stjórnarskránnar.
- Nauðugarsölur á frystihúsum.
- Léleg sjónvarpsdagskrá.
- Auglýsingar um fyrirlestra um samþættingu háskólasamfélagsins við atvinnulífið.
- Staksteinar drulla yfir Alþýðuflokkinn.
- Ítökum Rupert Murdoch yfir dagblaðamarkaðnum í Bretlandi mótmælt þarlendis.
- Íslendingar á barmi þess að verða orkustórveldi með fyrirhugaðri framleiðslu vetnis.
- Pólitískur óstöðugleiki í Ísrael.
- Áfellisdómar yfir stjórnarstefnunni og þeirri fátæktargildru sem hún hefur leitt Íslendinga í.
- Alþingismenn hneykslast á biðröðum Íslendinga sem þiggja félagsaðstoð, en enginn vill gangast við vandanum.
- Bankaeftirlitið hafði haft áhyggjur af eiginfjárstöðu íslensks banka strax 10 árum áður, og hafði gert margvíslegar athugasemdir við ýmsa þætti í rekstrinum.
- Fjöldi óleystra mála á borði ríkisstjórnarinnar...
Það versta er samt hvað djammið virðist vera glatað. Eða mikil snilld. Ég átta mig ekki alveg á því.
Mér finnst allavega dulargerviskvöldið á Kreml virka mjög athyglisvert. Eins og reyndar einkennisorð staðarins: "Eigi er kuldi í Kreml nema kynkuldi sé!".
Hvað þýðir það einu sinni?
(Eiki)