Nýlega var mottumars, þar sem margir, ef ekki flestir, íslenskir karlmenn reyndu fyrir sér með yfirvaraskeggrækt. Sumum lukkaðist þetta. Öðrum ekki.
Öll þessi umfjöllun fékk mig þó til að hugsa um yfirvaraskegg í sögulegu og félagslegu samhengi. Er það til að mynda almennt ásættanlegt að vera með yfirvaraskegg? Einskorðast skeggin við ákveðna samfélagshópa? Er söguleg hefð fyrir yfirvaraskeggjum á Íslandi? Þekkjum við marga yfirvaraskeggjaða menn úr Íslandssögunni? Hvernig menn voru þetta? O.s.frv.
Ég held að kategórískt séu svörin við öllum þessum spurningum neikvæð. Nema í mars undanfarin 2-3 ár (og í kringum Októberfest - vegna þess að Íslendingar sjá Þjóðverja fyrir sér sem skeggapa, mögulega útaf Bismark og Nietsche).
Allavega hefur maður einhverja svona frekar neikvæða mynd af mönnum með yfirvaraskegg. Það er eins og þeir hafi gleymt einhverju í lífinu. Þeir hafa gleymt metnaðnum. Þeir gleymdu skegginu undir nefinu á sér þegar þeir voru að raka sig. Núna er konan farin frá þeim (ef hún var nokkurn tíman til staðar). Þeim er samt einhvernvegin bara sama. Af því að þeir eru að reyna að muna hverju þeir gleymdu.
Þegar ég hugsa um sögufræga Íslendinga, þá á ég erfitt með að muna eftir yfirvaraskeggjuðum mönnum. Kannski af því að ég er sjálfur oft með yfirvaraskegg. Samt fjallar Íslandssagan eiginlega bara um karlmenn. Karlmenn sem eru uppteknir af skeggvexti, ef marka má taðskegglingatalið í Njálu.
Enginn forsetanna var með yfirvaraskegg. Fjölnismenn voru bara með þessar skelfilegu "hökuólar". Jón Sigurðsson sömuleiðis. hvorki styttan af Ingólfi Arnarsyni né Leifi heppna gefur manni ástæðu til að vera bjartsýnn. Ekki Steinn Steinarr, Davíð Stefánsson, Bólu-Hjálmar, Matthías Jochumsson, Jónas frá Hriflu, Bjarni Ben.
Einu mennirnir með yfirvaraskegg, sem ég man eftir í svipinn, eru Einar Benediktsson, Tryggvi Gunnarsson (Hundraðkalla-Tryggvi) og Vilhjámur frá Skáholti. Kannski er það mögulega ástæðan fyrir því að menn voru alltaf að reyna að feðra hann upp á Einar Ben?
Reyndar voru Halldór Laxness og Jóhannes úr Kötlum með einhversskonar hálfgildings yfirvaraskegg. Jón Sveinsson (of 'Nonni und Manni' fame) virðist líka hafa haft eitt slíkt, sem hann reyndi þó að fela með hökutopp, verandi Jesúítinn sem hann var.
Er ég að missa af einhverjum frægum íslenskum yfirvaraskeggjum?
Mér finnst þetta endurspeglast hvað best í því að mottukeppnin á Boston, er kölluð 'Tom Selleck-keppnin'.
Einnig mætti benda á hvað mottuátakið í mars er algerlega upp á þennan teiknaða skeggálf komið. Þar reyna menn ekkert að benda á skírskotanir úr Íslandssögunni (eða samtímanum).
Þú ættir nú að beita þér fyrir því að kepnin verði haldin á Einar Ben á næsta ári.
The password to post a comment is:
(Svanur)