11.5.2011 | Silfur Egils

Ég horfi nokkuð oft á Silfur Egils. Mér finnst þátturinn mikilvægur að mörgu leyti - sérstaklega þar sem megnið af umfjöllun Sjónvarpsins um pólitík fer fram á þessum klukkutíma. Ég segi hér umfjöllun til aðgreiningar frá áróðrinum sem Sjónvarpið sendir út svona alla jafna.

Silfur Egils er þó langt í frá að vera dæmi um óaðfinnanlega dagskrárgerð. Ef til vill mætti í einhverjum tilvikum tala um sjálfhverfu, auk þess sem 'media-presens' Egils Helgasonar getur oft verið pínku yfirþyrmandi. Það verður þó ekki frá Agli tekið að hann sinnir hlutverki sínu af áhuga og alúð. Hann skipar í reynd mikilvægan sess í íslenskri umræðu. Sama hvað fólki þykir annars um hann.

Kannski var það þess vegna sem ég skellti saman klippimyndinni hér að neðan. Kannski var þó engin sérstök ástæða fyrir því, önnur en sú að mér þótti þetta fyndin hugmynd, að hafa Egil í hrókasamræðum við sjálfan sig.

Í raun er það hugmynd sem er komin frá Friðriki Stein, vini mínum, en hann útbjó einnig keimlíka mynd. Það verður á endanum að segjast eins og er, að panel-formið á Silfrinu býður þessu heim.

silfuregilssmall

Nær samstundis eftir að ég birti myndina fyrst, fór að bera á því að áróðurssíðan AMX.is notaði hana til að myndskreyta alla þá níð um Egil sem þeir sjóða saman nær daglega.

Ég verð að viðurkenna að ég lenti í smá vandræðum með sjálfan mig. Ég er fyrir það fyrsta mjög ósammála nær öllu sem er skrifað inn á þennan AMX-vef. Einkum og sér í lagi er mér í nöp við þá lítilmannlegu persónuníð sem vefurinn birtir nafnlaust undir heitinu "smáfuglahvísl", en svo vill til að þar hefur myndin mín verið reglulega birt án leyfis. Þá vil ég síst af öllu að mín persóna sé á einhvern hátt spyrrt við þennan vef, eða að það líti svo út sem ég sé á mála hjá þeim (eins og kom reyndar fyrir nokkuð fljótlega). Ég á ekki að þurfa að svara fyrir slíkt.

Ég verð að viðurkenna að ég var síðan ekki alveg viss um hvað ég átti að leggja út af þessu. Í mínum huga er myndin einungis góðlátlegt grín eða einhverskonar umsögn um samtímann. Í höndum AMX verður myndin eitthvað allt annað. Hún verður hlaðin neikvæðu gildi þegar hún stendur með öllum þessu rætnu skrifum um Egil. Hvort ætti heldur að ráða því hvað mér eða öðrum finnst um myndina?

Á sama tíma hefur einkum þrennt komið til, þannig að ég hef ekki viljað bregðast við þessu, fyrr en nú.

  • Ég hef ekki viljað vekja neina óþarfa athygli á þessum leiðinda-vef. (Takið eftir því að ég forðast að hlekkja á þá.)
  • Myndin er samsett úr 6 skjáskotum af vef RÚV. Er þetta mál RÚV? Eða er þetta mitt mál? (Ég er ekki einu sinni fullviss um hvaða reglur gilda um skjáskot og notkun þeirra.)
  • Ég birti myndina upphaflega á facebook, þannig að ég veit ekki almennilega hvaða reglur gilda um höfundarétt á myndinni.

Nú þykir mér þó fullreynt að reyna að leiða þetta hjá mér. Nú síðast í dag voru skórnir gerðir að því, að hjá mér lægi einhver rætni í garð Eglis Helgasonar, sem er fjarri sannleikanum og mér þykir leitt að þurfa að svara fyrir.

Að endingu var því skotið að mér að ef til vill væri eina góða nálgunin á þetta hvimleiða vandamál að taka þetta svona saman í pistli eins og þessum, þar sem AMX-vefurinn væri tilgreindur og svertur ('named-and-shamed')* fyrir að ganga svona gróflega um höfundarrétt og hugverk annarra. Það er þá hér með gert.

Nú má fólk vita að utan þess að leggja stund á ómerkilegt skítkast og persónuníð, þá notast AMX.is við hugverk annarra þvert á vilja höfundar.

Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir því áður, en í raun á þetta merkilega vel við alla þessa umræðu um höfundarétt og frjálsa notkun hugverka sem hefur verið í gangi undanfarið. Ef til vill á þetta allavega alveg jafn vel við í umræðunni og allt havaríið í kringum þessa sundurmignu blómabók. Í tengslum við það get ég ekki annað sagt en að mér gremjist þessi notkun AMX á myndinni minni. En á sama tíma er svo kannski sáralítið hægt að gera við því...


*Fólk mætti endilega leggja til betri þýðingu á þessu orðasambandi.


3 comments
(Sveinbjörn)




3 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Blaldur at 12.5.2011

Unknown User

Gott stöff.

Eitt sem ég náði samt ekki, en kannski las ég illa, hafðirðu samb. við AMX út af þessu á sínum tíma.

Ég geri sosum ekki ráð fyrir að þeir hefðu tekið tilit til einhvers væls, en var forvitinn.

Bla.

[ Reply ]

Arnaldur at 12.5.2011

Arnaldur

Nei. Þetta er rétt hjá þér. Og auðvitað hefði ég átt að gera athugasemd við þá áður en ég fór að röfla yfir þessu hérna.

Málið er bara að ég hef sem minnst viljað með þennan vef að gera. Satt best að segja stendur mér stuggur af svona ofstopafullu liði. Ég upplifi svona svipaða tilfinningu og þegar ég tala við ofsatrúarfólk eða Vísindakirkju-brjálæðinga. Maður sér nú bara hvernig þeir gera sér far um að rægja hvern þann sem leyfir sér að gera athugasemd við þá. (En það er nú kannski annað mál.)

Ég vissi að þeir notuðu myndina strax og ég birti hana og ég ætlaði að láta það óátalið fyrst um sinn. Síðan hefur mér verið gert viðvart um að þeir væru farnir að nota myndina í hvert einasta sinn sem þeir skrifa eitthvað um Egil, og eins og ég segi, þá leiðist mér að þurfa að svara fyrir þetta.

Allavega, þá er ég búinn að senda þeim athugasemd núna.

Þetta er nú eins og ég segi, meira rantur af því að ég ef verið að lenda í því undanfarið að þurfa að svara fyrir þetta, sem mér leiðist.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 13.5.2011

Sveinbjörn

Ætli hann Doddi hafi ekki bent þeim á þetta...


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment