13.6.2011 | Af hverju er aldrei minnst á James Baldwin?

Ég rakst á þessar pallborðsumræður um réttindabaráttu blökkumanna frá 1963. Þarna eru saman komnir Marlon Brando, James Baldwin, Harry Belafonte, Charlton Heston, Joseph Minklelwitz og Sidney Poitier til að ræða vakninguna í bandarísku samfélagi um réttindi blökkumanna, og framtíðarhorfur í þeim efnum.

Baldwinofl1963

Upptakan er fyrir margar sakir athyglisverð. Það er athyglisvert að heyra sjónarmið Marlon Brando, sem ber von í brjósti um aukin réttindi öllum þjóðfélagshópum til handa, það er merkilegt að horfa á fundarstjórann reyna að bera í bætifláka með því að benda á hversu opið samfélag Bandaríkin eru í samanburði við Sovétríkin. Það er áhugavert að ímynda sér hvað Harry Belafonte og Sidney Poitier eru að hugsa , en þeir virðast heldur þöglir og brúnaþungir.

Síðast en ekki síst er dálítið sérkennilegt að horfa á alla sem eru þarna samankomnir keðjureykja sígarettur (og pípur), og drekka te eða kaffi. Ég er ekki frá því að ég kunni betur við þetta fyrirkomulag. Þetta virkar einhvernvegin mjög heimilislegt. Allavega væri gaman að sjá menn drekka kaffi úr fallegum bollum í viðtalsþáttum í dag.

Í kjölfar þess að ég horfði á pallborðsumræðurnar hér að ofan, fletti ég upp James Baldwin, en einhverra hluta vegna hafði ég aldrei heyrt minnst á hann. (Ég hvet fólk eindregið til að kynna sér manninn, í það minnsta kíkja á viðtalið hér að neðan.)

Ég fann svo einlægt viðtal við James Baldwin frá árinu 1963. Það viðtal er töluvert vitrænna en vaðallinn hér að ofan.

Viðtalið var tekið í kjölfar fundar við Robert F. Kennedy, þáverandi dómsmálaráðherra, um stöðuna sem upp var komin í réttindabaráttu blökkumanna á þeim tíma. Það sem mér finnst ótrúlega magnað við þetta viðtal er að hlusta á manninn greina stöðuna í samfélaginu, og vandann sem blökkumenn standa frammi fyrir. Í raun má segja að flest það sem hann færir fram gildi enn í dag, og einskorðist ekki endilega við þessar aðstæður eða þessa tilteknu tíma. Það er líka dálítið magnað að heyra hann tala um það sem hann sér sem vankannta á nálgun Malcom X og Martin Luther King Jr. þótt þeir væru báðir kollegar hans.

Allt þetta fær mann til að velta fyrir sér hvers vegna nafni James Baldwin er ekki haldið hærra á lofti og af hverju hann er ekki stærri karakter út á við í réttindabaráttu blökkufólks.


1 comments
(Steinn)




1 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 16.6.2011

Steinn

Of gáfaður, of samkynhneigður og trúleysingi í þokkabót.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment