Athyglisverðar vangaveltur í gær: Hvaða einstaklingur ætti að vera á 10.000 króna seðli, ef slíkur yrði gefinn út?
---VIÐBÓT---
Í kjölfarið á þessum vangaveltum, rakst ég á tengda frétt á lögregluvefnum frá 5. nóvember 2008.
Þetta fór víst framhjá mér á sínum tíma, en þá bar svo við að mönnum tókst að koma 10.000 króna seðli með mynd af Davíð Oddssyni í ló í matvöruveslun. Seðillinn reyndist svo aftur vera hluti af útskriftarverkefni LHÍ það sama ár eins og kemur fram í seinni frétt af málinu.
Stórt þykir mér spurt. Kjarval og Laxness hafa nýlega orðið fyrir valinu. Viljum við ekki fleiri menningarhetjur, frekar en afdankaða pólitíkusa?
Annars þá er ekki úr djúpum brunni að sækja sögulega Íslendinga sem einhverju máli skipta. Ég legg til að það frambærilegasta sem landið hefur upp á að bjóða verði sett á tíuþúsundkallinn, nefnilega íslensk náttúra.
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)