Mér var bent á býsna áhugaverða grein (reyndar á ensku), um borgarskipulag í Reykjavík í sögulegu samhengi.
Greinin er mjög áhugaverð samantekt fyrir margar sakir, þótt hún sé rúmlega 10 ára gömul (frá 1999) og kannski eilítið undarleg á köflum. Svo fylgja einnig býsna áhugaverðar myndir með.

Það sem kom mér mest á óvart við lestur greinarinnar var að Íslendingar voru tiltölulega fljótir um að taka evrópskar hugmyndir um borgarskipulag upp á arma sína, þótt eftirfylgnin hafi ekki gengið sem skyldi. Hér voru menn fullir af góðum hug, en ýmsir þættir unnu gegn mönnum í þessum efnum, eins og farið er vandlega yfir í greininni.
Afleiðingar alls þessa er sú borgarmynd sem við stöndum frammi fyrir í dag.
Það eru samt nokkur atriði í greininni sem mér þykir rétt að taka til sem fóru sérlega í taugarnar á mér. Verst þykir mér við greinina hvað orðalagið er oft undarlegt. Auk þess detta inn skrýtnir punktar af og til (lokaorðin t.d. um gildi Íslenskrar Erfðagreiningar eru mjög úr takti við allt annað).
Að lokum fer það svo líka alltaf pínku í taugarnar á mér þegar menn blanda eðlishyggju í málflutning sinn. Staðhæfingar um "individualistic Icelanders" þykja mér vafasamar og helst til þess fallnar að gengisfella málflutninginn. Þetta mættu menn passa betur hjá sér.
Heilt á litið finnst mér ég þó verða að mæla með því að fólk renni yfir greinina. Í henni kemur mjög margt fram sem ég og fleiri í kringum mig hafa verið að velta vöngum yfir í tengslum við skipulagsmál í Reykjavík.
The password to post a comment is: