12.7.2011 | Um hraðbankakost Reykjavíkurborgar

Um daginn þurfti ég nauðsynlega að nálgast reiðufé. Það var töluvert meira vesen en ætla mætti, og þó bý ég í hjarta borgarinnar þar sem megnið af ferðamönnum og verslun þeim tengdum á sér stað. Maður skyldi ætla að það væri vilji til að koma til móts við þennan stóra hóp neytenda, sem oft kýs að vera með reiðufé á sér, frekar en hitt.

Það er skemmst frá því að segja að það eru mjög fáir hraðbankar í miðbænum, og því vandkvæðum háð, sérstaklega fyrir ferðamenn að nálgast reiðufé. Ég tiltek sérstaklega ferðamenn í þessu samhengi þar sem þeir kjósa gjarnan að hafa reiðufé undir höndum, eins og maður þekkir sjálfur frá útlöndum. Mögulega er þetta tilkomið af því að oft er erfitt að setja sig vel inn í gengismun milli landa, í fljótu bragði og oft veitir reiðufé ákveðið aðhald í þeim efnum. Þá getur verið gott að hafa reiðufé milli handanna ef greiðslumiðlar úr plasti bregðast (eins og virðist nú gerast furðu oft í útlöndum).

Ég tók mig til og merkti inn á kort, hraðbanka í Reykjavík, innan þess svæðis sem mér þykir líklegast að mesti fjöldi ferðamanna athafni sig. Ég á ekki von á að ferðamannaverslun sé sérstaklega mikil í Breiðholti, Árbæ, Kópavogi eða á Seltjarnarnesi. Jafnvel þótt slík verslun væri mælanleg á þessum stöðum, þá finnst mér ólíklegt að hún sé meiri en í miðbæ Reykjavíkur. Hafa ber í huga að flest gistirými eru þar og skemmtiferðaskip leggja þar við höfnina.

borgarkorthradbankarsmall
Smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu.

Hraðbankarnir eru merktir inn á kortið samkvæmt upplýsingum frá Arion banka, Landsbankanum, Íslandsbanka og Byr. Nokkrir hraðbankarnir (aðallega á vegum Arion banka) eru hafðir ógreinilegri/daufari, en það eru hraðbankar sem eru sérstaklega tengdir einhverri afmarkaðri starfssemi, s.s. sjúkrahúsi eða menntastofnun. Ég kaus að fara þessa leið, þar sem ólíklegt hlýtur að teljast að útlendir ferðamenn brjóti sér leið inn í MH, eða Versló, til þess að nálgast reiðufé. Ólíklegt er að þeir átti sig á að þar sé hraðbankaþjónustu að sækja, auk þess sem hún er einungis aðgengileg í takmarkaðan tíma í sumum tilfella.

Eftirtektarvert er að Landsbankinn virðist vera sá banki sem sinnir hraðbankaþjónustu hvað best en þeir eiga langtum flesta hraðbankana í miðbænum sem standa öllum opnir.

Arion banki virðist snúa þjónustu sinni í ríkari mæli að sérhagsmunaaðilum, svo sem skólum og heilbrigðisstofnunum. Það er vissulega líka virðingarvert, (einhver verður að sinna því hlutverki,) en gaman væri að sjá þá koma á sama hátt til móts við t.d. ferðamenn.

Íslandsbanki er með fæsta bankana í miðbænum, en til að gæta sanngirnis, þá er bankinn með nokkra hraðbanka í úthverfum Reykjavíkur. Ég kaus að merkja hraðbankann í Kolaportinu skýrt inn á kortið, þar sem hann þjónar mikilvægu hlutverki fyrir ferðamenn sem fara þangað, þótt hann sé aðeins takmarkað aðgengilegur, rétt meðan Kolaportið er opið.

Ef við erum tilbúin að fallast á að megin þorra smávöruverslunar og þjónustu í miðbænum sé að finna milli Hringbrautar og Sæbrautar, frá Hofsvallagötu/Ægisgötu til Lönguhlíðar, þá er ekki sérlega mörgum hraðbönkum til að dreifa á því svæði, og oft er erfitt að finna þá. (Þessi afmörkun er byggð á eigin reynslu á borginni, og endurspeglar kannski annan veruleika en þann sem ferðamenn standa frammi fyrir.)

Á þessu svæði má finna 16 hraðbanka. Af þeim eru 4-5 bundnir við sérstakar stofnanir eða með takamarkaða þjónustu. Í reynd þjónusta um 11 hraðbankar svæðið, þannig að þeir geri það vel. Enginn hraðbanki er staðsettur sérstaklega nærri gömlu höfninni (Búllunni, Sægreifanum). Enginn hraðbanki sinnir Skólavörðustíg, þar sem mikil ferðamannaverslun fer fram (eftir að SPRON lokaði útibúi sínu þar). Hér bendi ég eingöngu á mjög augljósa staði þar sem færi vel á að vera með hraðbanka.

Til gamans setti ég líka inn á kortið eina símasjálfsalann á höfuðborgarsvæðinu. Mér finnst það viðeigandi. Ég nota gjarnan símasjálfsala þegar ég er í útlöndum. Ef ég væri útlendingur hér, þá gæti ég það ekki.


6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Kalli at 16.7.2011

Unknown User

Forvitnilegt. Ætli hafi verið gerð einhvers konar úttekt á þessu, þ.e. hvort ferðamönnum finnist vanta hér fleiri hraðbanka?

Ég var einmitt að leita að hraðbanka í nágrenni við vinnuna mína um daginn, rakst þá á þetta kort: http://maps.google.is/maps?q=http://maps.google.com/maps/ms%3Fie%3DUTF8%26t%3Dh%26hl%3Den%26oe%3DUTF8%26msa%3D0%26msid%3D117381530099250646138.00045c1dad9719833fe0f%26output%3Dkml

Sýnist þó að það þurfi að uppfæra.

[ Reply ]

Arnaldur at 17.7.2011

Arnaldur

Hvernig gekk þér að nota þetta kort?

Það er kannski ágætt til síns brúks, en þar eru merktir inn á fjöldamargir hraðbankar sem ekki eru starfræktir lengur.

Mikill sjónasviptir var af SPRON, sem starfrækti marga hraðbanka, sem enn eru merktir inn á google kortið.

Annars væri ég til í að heyra hvað ferðamönnum finnst, eins og þú segir. Ég veit þó að mörgum þeirra finnst óþægilegt að ekki sé hæglega hægt að komast í símasjálfsala.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 22.7.2011

Sveinbjörn

Fyrirmyndarbloggfærsla, en mér þykir hins vegar ekki boðlegt að hafa 1MB mynd embeddaða á forsíðunni hjá sér! Dawg, notaðu Save for Web í Photoshop, geymdu sem 24 bita PNG mynd, hún verður 100% jafn crisp og notar 5% af bandvídd!

[ Reply ]

Arnaldur at 26.7.2011

Arnaldur

Sorry 'bout that. Problem fixed.

[ Reply ]

Grímur at 4.8.2011

Grímur

Hvað meinarðu, má ekki nota kortið sem heimild til graftar? Hneyksli!

[ Reply ]

Arnaldur at 4.8.2011

Arnaldur

Þetta eru nú meira bara vinsamleg tilmæli. Ég segi "Dig away!"


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment