Þessi myndskreytir, sem kallar sig Kolb, er algerlega með þetta. Það er eiginlega svakalegt.
Mér finnst alltaf ótrúlega gaman að rekast á svona fínar síður, uppfullar af fínum verkum. En á sama tíma upplífi ég alltaf vissan kvíða og vanlíðan, því mér finnst ég ekki vera að sinna mínum eigin kreatívu verkefnum sem skyldi.

Hér er gaurinn búinn að búa til heila konsept-barnabók, bara af því að honum fannst það pínku töff.
Ég mæli með því að þið skoðið pdf-bókina hans. Hún er rosalega falleg, en ekki síður þótti mér pínku merkilegt að sjá hvernig hann túlkar lagið. Þetta er svo allt annar skilningur á atburðarásinni en ég hef venjulega lagt í hana.
Það virðist vera komin upp ákveðin lagaflækja í tengslum við nýja þáttinn hennar Ragnhildar Steinunnar, og er það mál manna að málið sé Ís-flókið.
Upprunalega ískonan, Margit Sandemo hjólaði upp í Efstaleiti 1 í gær og átti þar fund með Páli Magnússyni, útvarpsstjóra, sem brást við eins og ísfólið sem hann er.
Ég veit ekki með þetta...
Kínverji kaupir Grímsstaði!
Við þurfum að melta tilboð Kínverjans.
"Kínagullið" frá kínamanninum er nefnilega svo heillandi.
Er það bara ég, eða er þetta óeðlilegt? Ég bíð bara eftir einhverjum ummælum um meint hundaát þessa manns. Enda varla við öðru að búast frá svona kommúnista eins og fjölmiðlar hafa verið duglegir að benda á.
Eru bara einhverjir Grínverjar að skrifa þessar fréttir?
Bara svona ef það skyldi hafa verið einhver vafi...


Reservoir Dogs - The Beatles (Samklipp, 2011)
Ég hafði aldrei pælt í þessu áður...
Ef að barnið mitt kæmi heim og tjáði mér að það hefði fengið inngöngu í Hraðbraut, og hvort ég gæti ekki hjálpað því að greiða skólagjöldin, þá mundi ég segja:
"Nei. Þú ferð ekki í Hraðbraut. Bara alls ekki. Ég hef enga trú á þessu."
Hvar fann þessi maður tvo heila bekki af nýnemum?
Til ráðherrans er málið varðar,
Ef ég fæ ekki 1,5 milljónir til þess að verja til eigin hugðarefna, þá mun ég skrá mig á atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun.
(Ég mun ekki taka þátt í virkri atvinnuleit og misnota þannig kerfið í heilt ár nema að orðið verði við kröfum mínum.)
Ég fer fram á þetta fjárframlag árlega, ellegar mun ég leika sama leik að ári, o.s.frv.
Mér reiknast til að það sé mögulega minni tilkostnaður fólginn í því að verða við kröfum mínum. Takið þér tíma til að meta kröfu mína.
Góðar stundir,
Pyrros
Farþeginn: Hæ, skipstjóri! Þjer verðið að stansa, því að jeg misti tennurnar mínar í sjóinn.
Smá söguleg skoðun á íslenska kúrnum hans Sigmundar.
"The principal article of food is dried cod-fish, which is eaten without being cooked. Next in importance comes skyr, an imperfectly made cheese, which is eaten sour half the year. Butter, mostly rancid, is consumed in large quantities. Bread and vegetables are very little used. Meat is eaten not more than once a week; except in the months of September and October, it is not eaten fresh, but salted and smoked at once. Horse-meat is occasionally used. The Icelanders mostly eat their food cold, and use salt very little."
-Pierce, B.M. (1868) A report on the resources of Iceland and Greenland bls. 23
og
The food of the Icelander consists, now as ever, mainly of fish. In summer he fares on cods head boiled ; in winter, on sheeps head soused in fermented vinegar, or sour milk, or in juice of sorrel. Wheaten bread he eats only on high days and holidays ; the ordinary bread is of dark rye-flour, which is procured mainly from Copenhagen, and kneaded into broad, thin cakes.
-Hutchinson, H.N; Gregory, J.W.; Lydekker, R. (c.a. 1900) The Living Races of Mankind bls. 432
Guðmundur Steingrímsson: "Tjah, mér finnst bara t.d. umræðan í pólitíkinni vera orðin svo öfgakennd og hatrömm...
Ingvi Hrafn Jónsson: "Hann er hommi, framsóknarhommi!"
Tilfinningaþrungnustu vonbrigðis-ummælin sem heyrðust við vígslu "ljóshjúpsins" á Hörpu, á Menningarnótt:
Eins gott að kennslan í LHÍ fer mestmegnis fram á íslensku, en ekki ensku.
- - -

- - -
Trowned?
Í sumar hefur RÚV sýnt af sér fádæma snilld og í reynd sinnt ákveðnu lögbundnu hlutverki sínu sem það hefur annars vanrækt á eftirminnilegan hátt í lengri tíma. Með þessu á ég við þá ágætu ákvörðun að taka íslenskar kvikmyndir til reglubundinna sýninga í sumar.
Hann Kári Regal útbjó þennan líka
ofboðslega fína yfirlits-tékklista yfir myndirnar á dagskrá.
(Ég fann þetta ekki aftur á síðunni hans, og leyfði mér því að dreifa þessu svona.)
Nú hef ég verið iðinn við að horfa á margar af þessum kvikmyndum undanfarið og það er eitt sem ég tek sérstaklega eftir:
Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, og Tinna Gunnlaugsdóttir leika í semi öllum íslenskum bíómyndum sem hafa verið búnar til.
Sérstaklega virðist það vera sem svo að það sé ekki hægt að búa til kvikmynd á Íslandi án þess að Egill Ólafsson sé einhvernvegin viðriðinn framleiðsluna.
Núna verð ég frekar forvitinn og væri mikið til í að vita eftirfarandi tölfræði:
Er ekki til frekar tæmandi listi yfir íslenskar kvikmyndir? Væri ekki hægt að tékka á þessu? Hvar getur maður flett þessu upp?
(Steinn)