Í sumar hefur RÚV sýnt af sér fádæma snilld og í reynd sinnt ákveðnu lögbundnu hlutverki sínu sem það hefur annars vanrækt á eftirminnilegan hátt í lengri tíma. Með þessu á ég við þá ágætu ákvörðun að taka íslenskar kvikmyndir til reglubundinna sýninga í sumar.
Hann Kári Regal útbjó þennan líka
ofboðslega fína yfirlits-tékklista yfir myndirnar á dagskrá.
(Ég fann þetta ekki aftur á síðunni hans, og leyfði mér því að dreifa þessu svona.)
Nú hef ég verið iðinn við að horfa á margar af þessum kvikmyndum undanfarið og það er eitt sem ég tek sérstaklega eftir:
Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, og Tinna Gunnlaugsdóttir leika í semi öllum íslenskum bíómyndum sem hafa verið búnar til.
Sérstaklega virðist það vera sem svo að það sé ekki hægt að búa til kvikmynd á Íslandi án þess að Egill Ólafsson sé einhvernvegin viðriðinn framleiðsluna.
Núna verð ég frekar forvitinn og væri mikið til í að vita eftirfarandi tölfræði:
Er ekki til frekar tæmandi listi yfir íslenskar kvikmyndir? Væri ekki hægt að tékka á þessu? Hvar getur maður flett þessu upp?
Eru ekki allir íslenskir leikarar í öllum íslenskum myndum?
Eru Eddu-verðlaunin ekki soldið eins og stólaleikur þar sem stólar eru jafnmargir og keppendurnir?
Og Eddu-verðlaun í hverjum stól.
Er ekki challenge-ið að finna eina starfsmanninn í kvikmyndaiðnaðinum sem ekki á neina Eddu?
The password to post a comment is:
(Sveinbjörn)