Guðmundur Steingrímsson: "Tjah, mér finnst bara t.d. umræðan í pólitíkinni vera orðin svo öfgakennd og hatrömm...
Ingvi Hrafn Jónsson: "Hann er hommi, framsóknarhommi!"
Það er erfitt að átta sig á því hvort "framsóknarhommi" er móðgun. Kannski eru það bestu hommarnir.
Það er samt kurteislegra að segja "framkynhneigður"
Annars held ég að Ingvi Hrafn sé sjálfstæðskiptingur.
Það er samt ein 'unaddressed' hugsanavilla fólgin í þessu. (Fyrir utan það hvað þetta er ofboðslega húrrandi geðbilað.)
Guðmundur var að ganga ÚR framsóknarflokknum. Hann yfirgaf flokkinn. Hann er ekki í neinum flokki núna.
Ég hefði haldið að það gerði hann pólitrans-mann, eða allavega alls ekki framkynhneigðan, eins og Ingvi Hrafn vill meina.
Kannski merkir "framsóknar-" það sama og "skápa-"
En það er rétt, þá hefði hann átt að segja að Guðmundur hefði verið lengst inni í "framsókninni" en nú kominn út.
Það var svo víst akkúrat það sem hann meinti:
http://visir.is/atti-vid-politiska-skapahomma---aetladi-ekki-ad-modga-neinn/article/2011110829531
The password to post a comment is:
(Arnaldur)