Ég er mikið búinn að spila plötuna Loftmynd eftir Megas undanfarið. Hún er ansi merkileg og verður einhvernvegin betri við hverja áhlustun.
Mér hefur löngum skilist að platan væri einskonar óður til Reykjavíkurborgar, á tveggja alda afmæli kaupstaðarins. Kemur það heim og saman við bæði textana og hinn óskiljanlega formála sem fylgir með stafrænu útgáfunni á geisladisk frá árinu 2002.
Eitt lag virðist þó hálf munaðarlaust á plötunni, og það er Fílahirðirinn frá Súrín. Ljóðið er dæmalaust fagurt ástarljóð, en hefur enga skírskotun til Reykjavíkur, ólíkt öllum öðrum lögunum á plötunni.
Reyndar gerði Megas ferðir sínar til Tælands að umfjöllunarefni á plötunum sem á eftir fylgdu, svo kannski er vert að skoða þetta sem einhverskonar forsmekk að því sem koma skal.
Engu að síður hefur þetta alltaf virkað ögn undarlega á mig.
Ef einhver kann nánari skil á þessu má sá hinn sami gjarnan leggja orð í belg.
Hér læt ég fylgja "formálann" úr 2002 útgáfunni, sem ég skrifaði sjálfur upp. Ég held að þetta sé nokkuð rétt eftir upprunalega textanum haft hjá mér. (Upprunalegi textinn inniheldur þó nokkuð af stafsetningarvillum.)
Loftmynd
- Sögulegar staðreyndir og kredit
Á merkisafmæli Reykjavíkur borgar árið 1987 - þvert og endilangt - lögðu margir tónvitringar og texta á sig torfærar langleiðaferðir hugans og hjörtun og nýrun með leiddir af spegilmynd sinni á himni einni saman að finna og færa reifuðum jötunbura dýrar gjafir járnbundnar heillaóskum og eldlegum mærðum hver að sínum hætti og sínu lagi og sinni hæð ofar hvunndægurmáli. En í þessum góðviljaða flokki Vídusardansdísa leyndist -þetta er dæmigerður marklaus talsmáti - margur sem hamingju vegna borgarinnar betur hefði heima setið eitthvað alltannað að iðja og þarámeðal Höður blindi og fremur í margtaki en eintaki og ekki Lokalaus.
En einsog greint er frá í ævintýrinu vinsæla hugkvæmdist dís nokkurri og enganvegin úr hópi hinna snjallari og trúlega réði jafnvel útáþekjumennska að ósk hennar til handa afmæltu jóðinu varð síðbúin og varð það varnarleysingjanum til lífs. Loftmynd Megasar er tvímælalaust afmæli tileinkuð þó hvergi sé að því hnitað í stafsettum orðum. Kanski hinn vankaði meistari hafi misreiknað sig og diskurinn sérsmíðaður handa því digital dántáni sem í dag stýrir stjarna her og mannar sæta settið.
The password to post a comment is: