30.9.2011 | Made by Hand

Ég lenti í athyglisverðum samræðum við vin minn um daginn. Við ræddum um það hvað maður vildi helst gera í lífinu, í tengslum við atvinnu, ef maður réði þar ferðinni algerlega sjálfur.

Við vorum báðir sammála um að ef þess væri nokkur kostur þá væri best að vinna við eitthvað skapandi sem maður hefði brennandi áhuga á. Það hlyti að vera mest gefandi. Þannig væri líka líklegast að maður leggði sig meira fram við það sem maður væri að gera og vinnuframlag manns væri þ.a.l. verðmætara.

Ég hafði á orði, að hvað sjálfan mig varðaði, þá gæti ég helst hugsað mér að vinna við að búa til fýsíska hluti. Svona eins og á litlu verkstæði, þar sem maður skapaði og ynni einhverja fallega gæðavöru í takmörkuðu upplagi. Ég sæi þetta sem eitthvað sem höfðaði frekar til mín að svo stöddu en óhlutbundin skapandi vinna (s.s. ritstörf).

Ég fékk nú ekki miklar undirtektir við þessa hugmynd. Félagi minn tjáði mér að þetta væri allt saman byggt á misskilningi. Hann vildi meina að í dag ynni enginn við framleiðslustörf á Vesturlöndum. Hér færi öll vinna fram fyrir framan tölvuskjá.

Ég var ósammála þessu og reyndi að benda á að öll 'high-end' vara væri ennþá handgerð í takmörkuðu upplagi í Evrópu og víðar. Það væri það sem gerði hana dýra og eftirsóknarverða. Vinur minn var ekki tilbúinn að fallast á þetta og hélt því fullum fetum fram að allt væri framleitt í Kína í dag.

Made by
Hand

Það er nú kannski tómt mál að tala um þetta frekar. Það er nokkuð ljóst að þessi hugmynd um endalok handverks á Vesturlöndum stenst vart skoðun. Enda held ég að við höfum kannksi ekki verið að tala um sama hlutinn þegar upp er staðið.

Vissulega fer mikið af iðnaðarframleiðslu í stórum upplögum fram í Kína og öðrum frumframleiðsluríkjum. En ég held að hágæða handverk og nytjalist sé enn frekar staðbundið fyrirbæri og fyrirfinnist enn í miklum mæli á Vesturlöndum.

Þetta samtal rifjaðist svo upp fyrir mér þegar ég datt inn á síðuna Made by Hand. Síðan heldur utan um stuttar heimildarmyndir um fólk sem hefur tekið sig til og farið að framleiða handgerða gæðavöru í Brooklyn og í kringum New York.

Þetta er eiginlega nákvæmlega það sem ég var að meina.

Þess utan fannst mér bara sjálfsagt að henda þessu upp hérna. Þetta eru flottar myndir og áhugaverð síða. Ég bendi í þessu samhengi einnig á verslunar-hluta síðunnar sem er töluvert spennandi.


2 comments
(Eiki)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 30.9.2011

Steinn

Flest húsgögnin sem seld eru í Epal eru handgerð. Held meira að segja að öll húsgögnin í stofunni minni er handsmíðuð.

[ Reply ]

Eiki at 30.9.2011

Eiki

Bertrand Russell sagdi: "Work is of two kinds: first, altering the position of matter at or near the earth's surface relatively to other such matter; second, telling other people to do so. The first kind is unpleasant and ill paid; the second is pleasant and highly paid."

Mer finnst flest vinna a vesturlondum vera af seinni typunni. Sem er gott fyrir okkur, enda klykkir hann ut med:

"...moving matter about, while a certain amount of it is necessary to our existence, is emphatically not one of the ends of human life."


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment