Mig langar til að benda áhugasömum á þetta stórkostlega viðtal við Stefán Jón Hafstein um íslenskt samfélag í þættinum Landið sem rís í umsjá Ævars Kjartanssonar og Jóns Orms Halldórssonar.
Mér finnst einhvernvegin hugmyndir mínar um íslenska pólitík, samfélag, og stöðuna í dag vera fullkomnlega endurómaðar í þessu viðtali. Ég er viss um að margir aðrir eru sama sinnis.
Reyndar er það vel þess virði að tékka á þessum þáttum, ef maður hefur þolinmæði fyrir þessari crappy síðu sem RÚV heldur úti.
Í raun er það alger skandall að þetta efni sé ekki aðgengilegra á RÚV vefnum (reyndar er sæmilega boðlegt að nota podcast optionið þeirra, en það er ekki allt sem ratar þangað inn). Þess vegna ákvað ég að linka á upload-ið hennar Láru Hönnu á Soundcloud.
Það ætti í raun að veita Láru Hönnu verðlaun fyrir þessa sjálfboðavinnu sem hún stendur í, að umrita þessi gögn frá RÚV og gera þau aðgengileg.
The password to post a comment is:
(Steinn)