
Í framhaldi af samtali sem við Sveinbjörn áttum um daginn:

Í dag hefst Meistaramánuður 2011!
Meistaramánuðurinn eru 30 dagar sem þar sem þátttakendur ögra sjálfum sér líkamlega og andlega í átt að því að verða meistarar eigin lífs.
Sjálfur hef ég nú sest niður og sett mér nokkur markmið sem ég ætla að reyna að fylgja eftir af einurð næstu daga. Mörgum þættu þetta ef til vill fremur hófstillt markmið, en að fenginni reynslu tel ég að kapp sé best með forsjá, og að það fari best á því að fara hljóðlega af stað.
Hér eru markmið mín. Við sjáum svo til hvernig tekst til við að fylgja þeim eftir.
Langtíma markmið er að missa um 10-15 kg og bæta við vöðvamassa. Einnig þyrfti að bæta þol verulega, og vinna upp liðleika. Um nokkurt skeið hef ég saknað tveggja þátta sem áður voru ríkur þáttur í lífi mínu, það er útivist (fjallgöngur) og Júdó. Hér þykir mér kjörið tækifæri að vinna upp kjark til þess að hefja þessi áhugamál aftur til fyrri vegs og virðingar.
Æfingar
Matarræði
Öll markmið sem falla undir andlega þætti eru í sjálfu sér langtíma markmið. Ekki er hægt að ætlast til þess að verða fullnuma eða framúrskarandi í andlegum efnum á svo skömmum tíma sem 30 dögum. Aftur á móti má tala um gullið tækifæri til að taka stöðuna, setja sér markmið, fylgja þeim úr höfn og jafnvel klára einhver útistandandi verkefni.
Andlegir þættir
Ég hlakka til að takast á við þessi verkefni. Mögulega set ég upp status report sem verður hægt að nálgast í gegnum "meistaramerkið" hér til hliðar. Annars voru menn nú löngu búnir að átta sig á þessu, sbr. fréttaskotið hér að neðan...

„Ég vildi hvorki kynda undir ómálefnalegan áróður með nærveru minni eða leggja það á sjálfa mig að láta yfir mig ganga árásarkennda umræðu,“ segir Inga Sigrún Atladóttir, forseti bæjarstjórnar í Vogum
Eyþing, samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, gagnrýnir að björgunaraðgerðir stjórnvalda vegna sveitarfélagsins Álftaness geti mögulega orðið á kostnað annarra sveitarfélaga.
Það er ósanngjarnt að flytja auðlindir eins sveitarfélags í annað til uppbyggingar þar, segir forseti bæjarstjórnar Norðurþings.
Af því að við erum ekki 300.000 Íslendingar sem eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta.
Við erum 76 sveitarfélög í stríði við hvort annað.
Reyndar má hugga sig við að þessi hugsunarháttur gæti mögulega orðið til þess að virka sem einhverskonar dragbítur á þá brjálæðislegu aðför að gæðum landsins sem menn tala fyrir, hver í sínu horni.
Ég er mjög ánægður núna. Mér tókst að finna skopmyndina sem ég teiknaði um árið af sendinefndinni sem fór til Washington að reyna að betla út lengri viðveru bandaríkjahers á Íslandi. Ég taldi mig hafa tapað myndinni, og gladdist því óumræðilega þegar ég fann hana á gömlum hörðum disk. Enn er þó ekkert að frétta af BA-ritgerðinni.

Ég hef alltaf verið nokkuð ánægður með þessa mynd. Að neðan má sjá myndskreytinguna eftir George Cruikshank sem skopmyndin mín byggir á.

Steve Jobs dó.
Ég þekkti manninn ekki neitt, en einhverra hluta vegna þykir mér það alveg ótrúlega leitt. Það er alltaf leiðinlegt þegar framúrskarandi fólk deyr fyrir aldur fram.
Steve Jobs hefur allavega haft töluverð áhrif á líf mitt.
Mér dettur í hug að setja upp ræðu sem hann hélt við eitthvert tækifæri. Ég horfði á þetta um daginn, og hún virkaði einlæg og hvetjandi. Mér hefur stundum orðið hugsað til hennar upp á síðkastið.
Svo ætla ég að hafa hann hérna á síðunni fram yfir helgi. Maðurinn hlýtur nú í það minnsta að eiga svo mikið skilið.