22.10.2011 | Meistaramánuður 2011

globalchampcalendar

Í dag hefst Meistaramánuður 2011!

Meistaramánuðurinn eru 30 dagar sem þar sem þátttakendur ögra sjálfum sér líkamlega og andlega í átt að því að verða meistarar eigin lífs.

Sjálfur hef ég nú sest niður og sett mér nokkur markmið sem ég ætla að reyna að fylgja eftir af einurð næstu daga. Mörgum þættu þetta ef til vill fremur hófstillt markmið, en að fenginni reynslu tel ég að kapp sé best með forsjá, og að það fari best á því að fara hljóðlega af stað.

Hér eru markmið mín. Við sjáum svo til hvernig tekst til við að fylgja þeim eftir.

Líkamlegur þáttur

Langtíma markmið er að missa um 10-15 kg og bæta við vöðvamassa. Einnig þyrfti að bæta þol verulega, og vinna upp liðleika. Um nokkurt skeið hef ég saknað tveggja þátta sem áður voru ríkur þáttur í lífi mínu, það er útivist (fjallgöngur) og Júdó. Hér þykir mér kjörið tækifæri að vinna upp kjark til þess að hefja þessi áhugamál aftur til fyrri vegs og virðingar.

Æfingar

  • Mæta í ræktina minnst 2 í viku
  • Synda meira
  • Gefa mér góðan tíma í teygjur
  • Fara í a.m.k 2 minni fjallgöngur á tímabilinu
  • Upprifjun í Júdó (skoða möguleikann á að hefja æfingar að nýju, þó mögulega ekki skynsamlegt fyrr en eftir áramót)

Matarræði

  • Taka út brauð að mestu
  • Draga saman áfengisneyslu að nær öllu leyti
  • Ekkert djúpsteikt
  • Ekkert sælgæti eða sætabrauð
  • Einungis drekka vatn, sódavatn og kaffi (svart og sykurlaust)
  • Drekka líka meira vatn

Andlegur þáttur

Öll markmið sem falla undir andlega þætti eru í sjálfu sér langtíma markmið. Ekki er hægt að ætlast til þess að verða fullnuma eða framúrskarandi í andlegum efnum á svo skömmum tíma sem 30 dögum. Aftur á móti má tala um gullið tækifæri til að taka stöðuna, setja sér markmið, fylgja þeim úr höfn og jafnvel klára einhver útistandandi verkefni.

Andlegir þættir

  • Klára ókláruð verkefni (s.s. Snúð ofl.)
  • Lesa 1-2 bækur (helst eina skáldsögu (helst íslenska) og eina fræðilega bók)
  • Læra almennilega á Illustrator
  • Teikna, minnst tvisvar í viku
  • Læra ný grip og ný lög á gítar
  • Skrifa minnst eina bls. af texta á dag (í tengslum við ýmis verkefni)


Ég hlakka til að takast á við þessi verkefni. Mögulega set ég upp status report sem verður hægt að nálgast í gegnum "meistaramerkið" hér til hliðar. Annars voru menn nú löngu búnir að átta sig á þessu, sbr. fréttaskotið hér að neðan...

meistarimeistaranna1

2 comments
(Sigurgeir Þór)




2 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 25.10.2011

Steinn

Vel af sér vikið. Er til í að líta í JR eftir áramót.

[ Reply ]

Sigurgeir Þór at 28.10.2011

Unknown User

Gott framtak, mér finnst samt að ræktin mæti vera 3X í viku (nema fjallganga komi í staðinn).


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment