Results for 2011-11

26.11.2011 | Remember the War

Fann þessa geðveiku síðu sem heitir Remember the War.

Frábært framtak.




25.11.2011 | Spjaldtölva gerir út af við fílófax

filofax1

Spjaldtölvur hafa bitnað illa fílóföxum landsins. Eigandi eins elsta fílófaxins á landinu krefst þess að yfirvöld grípi í taumana.

Hann kennir spjaldtölvum og snjallsímum um minni umsvif fílófaxins. Það sé ekki samkeppnin frá post-it miðum. "Nei alls ekki. Fólk týnir þessum miðum, en það er allt á sínum stað í fílófaxinu. Það kemst bara svo mikið í þessar spjaldtölvur. Alþingi þarf að gefa FÍFL (Félagi Íslenskra Fílófaxara á Landsvísu) leyfi til að loka fyrir verslanir sem eru með spjaldtölvur."

Eftir því sem næst verður komist hefur lögreglan ekki mannskap til að bregðast strax við ábendingum um sölu spjaldtölva.

"Ætli þessum fáu fílóföxum sem eru eftir verði ekki bara hent. Maður hefur verið að spá í það lengi en svo fer maður nú bara að hætta að vinna hvort sem er."


5 comments
(Arnaldur)



23.11.2011 | Um félagslegt réttlæti innan OECD

overallsocialjusticerating



OECD lítur á félagslegt réttlæti meðal aðildarríkja í nýrri könnun.

Ísland kemur ágætlega út.

Nú bíður maður bara eftir að vælið og nöldrið geri vart við sig, þar sem menn draga þessa niðurstöðu í svaðið.

Það er nefnilega annar listi sem Ísland toppar líka. Það er sjálfsvorkunar-nöldur-væl listinn.









2 comments
(Eiki)



23.11.2011 | Þessi Evra ætlar nú ekki að reynast þeim vel þarna syðra...

Nú er ég enginn heittrúa Evrópusinni. Ég er heldur ekki andstæðingur Evrópusambandsins. Ég hef bara hreinlega ekki gert upp hug minn. Ég leyfi mér þann munað að vera óákveðinn og vil bara fá að vega og meta þetta í rólegheitunum. Þannig hef ég skipt um skoðun margsinnis í þessum efnum hingað til, og á sjálfsagt eftir að halda því áfram.

Eitt finnst mér þó alltaf jafn athyglisvert þegar fólk ræðir þessi Evrópusambandsmál. Það er fólkið, sem uppfullt af þórðargleði, bendir á Evrópusambandið og mælir með fyrirlitningartón um að "þar sé nú hreint barasta alls ekkert allt í lagi."

Svo bætir það gjarnan við að "útlitið sé nú ekki gott fyrir þessa handónýtu evru þeirra."

neineinei

Það kann nú að vera rétt athugað að Evrópusamstarfið sé í nokkru uppnámi þessa dagana. Nú reynir á ýmsa veika hlekki sem menn höfðu vitað af um langt skeið. Það er líka rétt að Evran á við allskyns vandamál að etja.

En ef maður lítur aðeins í kring um sig þá kemst maður fljótt að því að þetta vandræðastef er nokkurnvegin viðvarandi allt um kring, og einskorðast ekkert við EU.

Mér finnst líka eitthvað fyllilega óviðeigandi við það þegar menn setja sig á háan hest hérna heima fyrir og mæla yfirlætislega um að allt sé í steik þar ytra. Því að það er ekkert síður rugl í gangi hérna. Og til þess að fyllsta sanngirnis sé gætt, þá er krónan alls ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Ég get ekki annað sagt en að þetta angi allt af hræsni.




22.11.2011 | xkcd: Money Chart

Ég er búinn að vera að liggja yfir myndrænni framsetningu á allskonar efnahagsstærðum sem xkcd hefur sett fram.

FML!


1 comments
(Anonymous Coward)



19.11.2011 | Augun mín og augun þín

Ég fór út fyrir heimilið að kaupa mat í kvöld. Þetta er tiltölulega ómerkilegt í sjálfu sér. Þetta gerist minnst einu sinni í viku.

Það sem situr aftur á móti með mér eftir þessa ferð, og hefur skotið upp kollinum í huga mér af og til undanfarið, er afgreiðslukonan sem afgreiddi mig um matinn.

Afgreiðslukonan var með einhverskonar ofholdgun í öðru augnvikinu. Þetta virkaði svolítið eins og að agnarsmár bavíanarass væri að troða sér út um tárakirtlana hennar á öðru auganu.

Ég vildi ekki horfa á þetta hjá henni - ég vildi reyna að vera kurteis, en þetta var í auganu á henni, þannig að ég lenti í einhverri hræðilegri sjálfheldu með þetta. Ég einhvern veginn neyddist til að glápa á þetta þegar ég þurfti að tala við hana.

Á endanum reyndi ég að tala sem minnst við hana, og þóttist vera að skoða matseðla og allt annað sem ég gat fundið þarna inni. Bara til að lenda ekki í þessum vandræðalegu augngotum.

Það er snúnara en maður skyldi ætla að horfast ekki í augu við afgreiðslufólk þegar maður er að panta sér mat:

Afgreiðslukona:
-"Viltu hvítlauksolíu með þessu?"

Arnaldur: (Þykist niðursokkinn í innihaldslýsingu á orkudrykk sem ég ætla ekki að kaupa.)
-"Ha? Nei, nei." (Án þess að líta upp.)

O.s.frv...

Allt í allt endaði þetta sumsé í einhverju rugli, þannig að ég var hálfpartinn að ignorera afgreiðslukonuna meðan hún var að reyna að þjónusta mig. M.ö.o. Mjög dónaleg framkoma, þótt ég hafi verið að reyna að stíla inn á "flippaða kærulausa gaurinn sem er frekar utan við sig". Ég er viss um að þessi kona hefur álitið mig mjög typpalegan.

Ég fékk loks matinn í hendurnar og fór með hann heim. Hann bragðaðist einkar vel, fyrir utan eina sósuna sem var ekkert spes. Allan tíman sem ég var að borða gat ég samt ekki hætt að hugsa um litla aparassinn í augnvikinu. Og eins góður og mér þótti maturinn, þá var þetta allt saman eitthvað hálf "off-putting".


1 comments
(Eiki)



16.11.2011 | Bjarni vs. Birna

Þegar talið berst að landsfundi Sjalfstæðisflokksins um helgina get ég ekki annað en hugsað til forsetaframbjóðendanna í Futurama, Jack Johnson og John Jackson.


bjarni birna

"Now, I respect my opponent. I think he is a good man.
But quite frankly, I aggree with everything he just said!"

Hjá Sjálfstæðisflokknum heita frambjóðendurnir Bjarni og Birna.

Einhver lýsti því reyndar sem svo að það væri nokkur munur á frambjóðendunum ef maður skyggndist undir yfirborðið. - Einn væri jú alger kerling, á meðan hinn væri með eggjastokka.


2 comments
(Arnaldur)



16.11.2011 | Deconstructing Burrito Bandito




15.11.2011 | Tvær stjörnur

Ég teiknaði mynd af Megasi og Bubba. Myndin heitir Tvær stjörnur því mér finnst þeir báðir vera stórstjörnur. Þeir eru meira og minna klæddir bláum fötum, en það er vísun í samstarfsplötu þeirra Bláa drauma. Lagið Tvær stjörnur kom einmitt fyrst út á þeirri plötu.

tvaer stjoernur small

Myndin var framlag mitt í Teiknisamkeppni Listasafns Reykjavíkur.

Myndin vann nú reyndar ekki, en var engu að síður valin til sýningar í tengslum við samkeppnina. Hana má því berja augum í Hafnarhúsinu fram til 1. janúar 2012.


2 comments
(Steinn)



15.11.2011 | Agricola Subsidia

Ég verð að viðurkenna að ég hleyp á vegg þegar ég reyni að skilja málflutning Bændasamtakanna.

Nú er það svo að hjarta mitt slær með bændum. Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim bændum sem stunda sinn landbúnað af samviskusemi og dugnaði, og hafa haft frumkvæði um að nútímavæða og betrumbæta sína atvinnugrein.

Aftur á móti er það nokkuð augljóst að landbúnaðarkerfið á Íslandi er gegnrotið og ónýtt. Og til einskis gagnlegt.

Til dæmis skil ég ekki svona fréttir.

"Auka þyrfti stuðning við bændur um allt að sex milljarða á ári ef tryggja ætti afkomu þeirra eftir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu hagfræðinga. Verð á sumum matvörum gæti lækkað um allt að helming við aðild."

Að íslenskur landbúnaður sé svo ósamkeppnishæfur við útlönd, að jafnvel þótt styrkja frá EU nyti við, þá þyrfti íslenska ríkið að styrkja þetta fólk um 11-15 milljarða til að stunda sinn óarðbæra rekstur?

Í hvaða heimi er vitglóra í þessu?

"Af þessu leiðir að ef afkoma bænda á ekki að rýrna eftir aðild að ESB þyrfti að auka stuðning við þá. Í fyrra runnu níu milljarðar úr ríkissjóði til bænda en eftir aðild telja hagfræðingarnir að stuðningurinn þyrfti að vera ellefu til fimmtán milljarðar króna eftir því hvert gengi krónunnar er."

???

jonbjarnasonnidurgreidslur

6 comments
(Arnaldur)



11.11.2011 | Yuri Gagarin Monument

yurigagarinstatue

Yuri Gagarin Monument í Moskvu er svakalegt. Það var reist árið 1980 og er úr títaníumi.
Ef þið reisið mér styttu, þá megið þið líta til þessarar.

6 comments
(Sveinbjörn)



10.11.2011 | The Horseshoe

bikerman590

Ég sá þetta og varð að gera svona sjálfur.

UPDATE: Svo reyndist þetta vera skýringin...


1 comments
(Sveinbjörn)



10.11.2011 | Opið bréf til Sveinbjarnar Þórðarsonar

Heill og sæll Sveinbjörn Þórðarson.

Um nokkurt skeið hefur það mátt vera mér ljóst að tímabært sé að við lítum í kvikmyndahús.

Hér með mátt þú líta á þetta bréf sem opið boð um slíka ferð einhvern tíman á næstunni.

Einnig krefst ég þess að þú biðjist afsökunar og látir af öllum hótunum sem þú hefur haft í frammi.

Með bestu óskum,

Arnaldur Grétarsson


7 comments
(Arnaldur)



10.11.2011 | Opið bréf til Grétars Amazeen

Heill og sæll Grétar Amazeen, sem kennir sig við Alþýðulýðveldi.

Ég hef eins og aðrir Íslendingar fylgst með einkennilegum samskiptum þínum við annað fólk á samskiptavefnum “facebook,” stundum kallað snjáldursskinna.

Ekki fer milli mála að þér finnst það ekki tiltökumál gera aðfinnslur að tónlistarsmekki fólks á óvæginn og oft á tíðum ósmekklegan hátt. Hefur þetta ójafnvægi af þinni hálfu jafnvel gengið svo langt að tiltaka einstaka vel þekkt lög, sem elskuð eru af íslensku þjóðinni og rægja þau í allra viðurvist. Kemur þetta í ofan á lag við ýmsar undarlegar og oft á tíðum ógeðfelldar aðdróttanir sem þú hefur eftirlagt á síður svokallaðra “vina” þinna.

Í opnu bréfi til aðdáenda lagsins “Nína” vísaðir þú til þess að ef þú kæmist til valda, yrði þessum hópi fólks útrýmt eins og gyðingum helfararinnar. Þú sem forseti værir þjóðkjörinn og ættir því undir engann annan að sækja; forsætisráðherra hefði ekkert boðvald yfir þér.

Og þér bæri því engin skylda til að svara einu né neinu sem frá ráðherra kæmi.

Reyndar talar þú fjálglega um að “taka völdin” eins og um væri að ræða nasíska byltingu á stjórnháttum landsins!!!

En Grétar. Leyfðu mér að benda þér á eitt. Skv. 211. grein Almennra hegningarlaga, er bannað að myrða fólk. Jafnvel þótt það leyfi sér að hlusta á tónlist sem er þér ekki hugnanleg. Og Grétar, ég skal benda þér á annað til viðbótar. Skv. 66. gr. sömu laga, þá er þessi hótun sem þú hefur í frammi einnig ólögleg. Kannski kemur einhver “Nínumaður” og leitar réttar síns? Við bara vitum það ekki.

Nú er það svo að lagið “Nína” er í hávegum haft á velflestum heimilum landsins og jafnan sungið til að tjá gleði og hamingju. Ert þú á móti hamingju Grétar? Ísland hefur átt því láni að fagna að búa við svo unaðslega tónsmíð sem auðgað hefur samfélagið. Um það er ekkert nema gott að segja, enda hef ég aldrei annað sagt.

Samt telur þú umkominn að gefa í skyn að aðdáendur “Nínu” séu réttdræpir? Leyfðu mér að spyrja þig: Hverjir vita að þú munt aldrei aftur strjúka vanga þeirra? Hverjir vildu að þeir gætu sofið heila öld? Hverjir vita ekki til hvers lífið heldur áfram? Hvar er dauðaóskin í þessu Grétar?

Ég treysti því þess vegna að fá sem fyrst svar, samkvæmt þinni eigin skilgreiningu á að það varði mig sem “Nínumann” með “vondan tónlistarsmekk”. Einnig vil ég fá afturvirka afsökunarbeiðni með ósk um fyrirgefningu og að þú látir af öllum hótunum og málshöfðunum.

Með bestu óskum,

Arnaldur Grétarsson


2 comments
(Blaldur)



8.11.2011 | Morgunblaðshöllin

mbleu

Morgunblaðið flaggar ritstjórnarstefnu sinni í Evrópumálum.

2 comments
(Steinn)



6.11.2011 | Made by Hand vol. 2

Ég benti nýlega á síðuna Made by Hand í pistli um fyrirkomulag handverks í dag.

madebyhand2knifemaker

Nú er kominn inn mynd númer tvö, en hún fjallar um hnífagerðarman í Brooklyn. Sú er jafnvel betri. Hún er einhvernvegin áhrifaríkari og ber boðskapinn betur með sér.


2 comments
(Arnaldur)



5.11.2011 | The Condo at the End of the World

Ég rakst á þessa stórkostlega áhugaverðu heimildar-stuttmynd. Myndin heitir The Condo at the End of the World - Life Inside a Nuclear Missile Bunker og fjallar um fólk sem býr í kjarnorku-byrgjum í Bandaríkjunum.

bunkerliving

Sagt er frá tveimur mönnum sem gefa upp mismunandi ástæður fyrir veru sinni í byrgjunum.

Heimsmyndin sem birtist manni þarna er eiginlega hálf-dapurleg.


2 comments
(Blaldur)



1.11.2011 | Teikniteikn

djupid small

4 comments
(Sveinbjörn)