Heill og sæll Grétar Amazeen, sem kennir sig við Alþýðulýðveldi.
Ég hef eins og aðrir Íslendingar fylgst með einkennilegum samskiptum þínum við annað fólk á samskiptavefnum “facebook,” stundum kallað snjáldursskinna.
Ekki fer milli mála að þér finnst það ekki tiltökumál gera aðfinnslur að tónlistarsmekki fólks á óvæginn og oft á tíðum ósmekklegan hátt. Hefur þetta ójafnvægi af þinni hálfu jafnvel gengið svo langt að tiltaka einstaka vel þekkt lög, sem elskuð eru af íslensku þjóðinni og rægja þau í allra viðurvist. Kemur þetta í ofan á lag við ýmsar undarlegar og oft á tíðum ógeðfelldar aðdróttanir sem þú hefur eftirlagt á síður svokallaðra “vina” þinna.
Í opnu bréfi til aðdáenda lagsins “Nína” vísaðir þú til þess að ef þú kæmist til valda, yrði þessum hópi fólks útrýmt eins og gyðingum helfararinnar. Þú sem forseti værir þjóðkjörinn og ættir því undir engann annan að sækja; forsætisráðherra hefði ekkert boðvald yfir þér.
Og þér bæri því engin skylda til að svara einu né neinu sem frá ráðherra kæmi.
Reyndar talar þú fjálglega um að “taka völdin” eins og um væri að ræða nasíska byltingu á stjórnháttum landsins!!!
En Grétar. Leyfðu mér að benda þér á eitt. Skv. 211. grein Almennra hegningarlaga, er bannað að myrða fólk. Jafnvel þótt það leyfi sér að hlusta á tónlist sem er þér ekki hugnanleg. Og Grétar, ég skal benda þér á annað til viðbótar. Skv. 66. gr. sömu laga, þá er þessi hótun sem þú hefur í frammi einnig ólögleg. Kannski kemur einhver “Nínumaður” og leitar réttar síns? Við bara vitum það ekki.
Nú er það svo að lagið “Nína” er í hávegum haft á velflestum heimilum landsins og jafnan sungið til að tjá gleði og hamingju. Ert þú á móti hamingju Grétar? Ísland hefur átt því láni að fagna að búa við svo unaðslega tónsmíð sem auðgað hefur samfélagið. Um það er ekkert nema gott að segja, enda hef ég aldrei annað sagt.
Samt telur þú umkominn að gefa í skyn að aðdáendur “Nínu” séu réttdræpir? Leyfðu mér að spyrja þig: Hverjir vita að þú munt aldrei aftur strjúka vanga þeirra? Hverjir vildu að þeir gætu sofið heila öld? Hverjir vita ekki til hvers lífið heldur áfram? Hvar er dauðaóskin í þessu Grétar?
Ég treysti því þess vegna að fá sem fyrst svar, samkvæmt þinni eigin skilgreiningu á að það varði mig sem “Nínumann” með “vondan tónlistarsmekk”. Einnig vil ég fá afturvirka afsökunarbeiðni með ósk um fyrirgefningu og að þú látir af öllum hótunum og málshöfðunum.
Með bestu óskum,
Arnaldur Grétarsson
Áhugavert atriði varðandi fasíska flokka líkt og nasista og fasistaflokkinn á Ítalíu, að hvorugur flokkur "tók völdin" heldur var þeim einfaldlega rétt þeim í hendur.
Svo Grétar var frekar að gefa í skyn einhverja bolsévíska byltingu að ég held.
The password to post a comment is:
(Blaldur)