15.11.2011 | Agricola Subsidia

Ég verð að viðurkenna að ég hleyp á vegg þegar ég reyni að skilja málflutning Bændasamtakanna.

Nú er það svo að hjarta mitt slær með bændum. Ég ber ómælda virðingu fyrir þeim bændum sem stunda sinn landbúnað af samviskusemi og dugnaði, og hafa haft frumkvæði um að nútímavæða og betrumbæta sína atvinnugrein.

Aftur á móti er það nokkuð augljóst að landbúnaðarkerfið á Íslandi er gegnrotið og ónýtt. Og til einskis gagnlegt.

Til dæmis skil ég ekki svona fréttir.

"Auka þyrfti stuðning við bændur um allt að sex milljarða á ári ef tryggja ætti afkomu þeirra eftir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu hagfræðinga. Verð á sumum matvörum gæti lækkað um allt að helming við aðild."

Að íslenskur landbúnaður sé svo ósamkeppnishæfur við útlönd, að jafnvel þótt styrkja frá EU nyti við, þá þyrfti íslenska ríkið að styrkja þetta fólk um 11-15 milljarða til að stunda sinn óarðbæra rekstur?

Í hvaða heimi er vitglóra í þessu?

"Af þessu leiðir að ef afkoma bænda á ekki að rýrna eftir aðild að ESB þyrfti að auka stuðning við þá. Í fyrra runnu níu milljarðar úr ríkissjóði til bænda en eftir aðild telja hagfræðingarnir að stuðningurinn þyrfti að vera ellefu til fimmtán milljarðar króna eftir því hvert gengi krónunnar er."

???

jonbjarnasonnidurgreidslur

6 comments
(Arnaldur)




6 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Steinn at 15.11.2011

Steinn

Ég heyrði þetta í hádegisfréttum og varð undrandi. Bændasamtökin fara fram úr sér með hverjum degi sem líður.

[ Reply ]

Sveinbjörn at 15.11.2011

Sveinbjörn

Það ætti að gefa landbúnað frjálsan á Ísland, reka alla þessa tilgangslausu skristofublókir í bændasamtökunum, sem gera ekkert annað en að fleyta rjómann ofan af ríkisgreiðslum og tryggja að íslensk framleiðsla haldi áfram að vera eins og hún er: léleg og dýr. Í flestum þróuðum ríkjum er hægt að kaupa tvær vörutegundir sem mér þykir mjög góðar, nefnilega ostur og skinka. Slík vara fæst því miður ekki á Íslandi nema þá að maður fari í gourmet búðir og kaupi það innflutt dýrum dómum.

Kerfið er hreint út sagt viðbjóðslegt, og er hvorki bændum né íslenskum neytendum til góðs. Því fyrr sem þetta viðurstyggilega bjúrókratabákn er afnumið -- eina sanna ráðríkjaarfleifð okkar -- því betra.

[ Reply ]

Arnaldur at 15.11.2011

Arnaldur

Hvað finnst þér btw um myndskreytinguna sem ég bjó til?

[ Reply ]

Doddi at 17.11.2011

Doddi

Hættu að blogga um pólitík, þú ert of skemmtilegur gaur til þess.

[ Reply ]

Arnaldur at 17.11.2011

Arnaldur

Engir afkimar mannlífsins eru Arnaldi óviðkomandi!

[ Reply ]

Arnaldur at 17.11.2011

Arnaldur

Annars er pólitík 'nýja svart'. Allir eru að tala um hana. Á landsfundum, á bloggum og kaffistofum. Já, og á facebook. Það gerist allt á facebook þessa dagana.


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment