Ég fór út fyrir heimilið að kaupa mat í kvöld. Þetta er tiltölulega ómerkilegt í sjálfu sér. Þetta gerist minnst einu sinni í viku.
Það sem situr aftur á móti með mér eftir þessa ferð, og hefur skotið upp kollinum í huga mér af og til undanfarið, er afgreiðslukonan sem afgreiddi mig um matinn.
Afgreiðslukonan var með einhverskonar ofholdgun í öðru augnvikinu. Þetta virkaði svolítið eins og að agnarsmár bavíanarass væri að troða sér út um tárakirtlana hennar á öðru auganu.
Ég vildi ekki horfa á þetta hjá henni - ég vildi reyna að vera kurteis, en þetta var í auganu á henni, þannig að ég lenti í einhverri hræðilegri sjálfheldu með þetta. Ég einhvern veginn neyddist til að glápa á þetta þegar ég þurfti að tala við hana.
Á endanum reyndi ég að tala sem minnst við hana, og þóttist vera að skoða matseðla og allt annað sem ég gat fundið þarna inni. Bara til að lenda ekki í þessum vandræðalegu augngotum.
Það er snúnara en maður skyldi ætla að horfast ekki í augu við afgreiðslufólk þegar maður er að panta sér mat:
Afgreiðslukona:
-"Viltu hvítlauksolíu með þessu?"
Arnaldur: (Þykist niðursokkinn í innihaldslýsingu á orkudrykk sem ég ætla ekki að kaupa.)
-"Ha? Nei, nei." (Án þess að líta upp.)
O.s.frv...
Allt í allt endaði þetta sumsé í einhverju rugli, þannig að ég var hálfpartinn að ignorera afgreiðslukonuna meðan hún var að reyna að þjónusta mig. M.ö.o. Mjög dónaleg framkoma, þótt ég hafi verið að reyna að stíla inn á "flippaða kærulausa gaurinn sem er frekar utan við sig". Ég er viss um að þessi kona hefur álitið mig mjög typpalegan.
Ég fékk loks matinn í hendurnar og fór með hann heim. Hann bragðaðist einkar vel, fyrir utan eina sósuna sem var ekkert spes. Allan tíman sem ég var að borða gat ég samt ekki hætt að hugsa um litla aparassinn í augnvikinu. Og eins góður og mér þótti maturinn, þá var þetta allt saman eitthvað hálf "off-putting".
Kannski er þetta eins og með stolnu kökurnar í Dýrunum í Hálsaskógi, þ.e. að transaksjónin hafi áhrif á bragðgæði.
Annars fór Peep Show stefið nú að laumast að mér þegar ég las þessa færslu.
The password to post a comment is:
(Eiki)