23.11.2011 | Þessi Evra ætlar nú ekki að reynast þeim vel þarna syðra...

Nú er ég enginn heittrúa Evrópusinni. Ég er heldur ekki andstæðingur Evrópusambandsins. Ég hef bara hreinlega ekki gert upp hug minn. Ég leyfi mér þann munað að vera óákveðinn og vil bara fá að vega og meta þetta í rólegheitunum. Þannig hef ég skipt um skoðun margsinnis í þessum efnum hingað til, og á sjálfsagt eftir að halda því áfram.

Eitt finnst mér þó alltaf jafn athyglisvert þegar fólk ræðir þessi Evrópusambandsmál. Það er fólkið, sem uppfullt af þórðargleði, bendir á Evrópusambandið og mælir með fyrirlitningartón um að "þar sé nú hreint barasta alls ekkert allt í lagi."

Svo bætir það gjarnan við að "útlitið sé nú ekki gott fyrir þessa handónýtu evru þeirra."

neineinei

Það kann nú að vera rétt athugað að Evrópusamstarfið sé í nokkru uppnámi þessa dagana. Nú reynir á ýmsa veika hlekki sem menn höfðu vitað af um langt skeið. Það er líka rétt að Evran á við allskyns vandamál að etja.

En ef maður lítur aðeins í kring um sig þá kemst maður fljótt að því að þetta vandræðastef er nokkurnvegin viðvarandi allt um kring, og einskorðast ekkert við EU.

Mér finnst líka eitthvað fyllilega óviðeigandi við það þegar menn setja sig á háan hest hérna heima fyrir og mæla yfirlætislega um að allt sé í steik þar ytra. Því að það er ekkert síður rugl í gangi hérna. Og til þess að fyllsta sanngirnis sé gætt, þá er krónan alls ekkert til að hrópa húrra fyrir.

Ég get ekki annað sagt en að þetta angi allt af hræsni.




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment