25.11.2011 | Spjaldtölva gerir út af við fílófax

filofax1

Spjaldtölvur hafa bitnað illa fílóföxum landsins. Eigandi eins elsta fílófaxins á landinu krefst þess að yfirvöld grípi í taumana.

Hann kennir spjaldtölvum og snjallsímum um minni umsvif fílófaxins. Það sé ekki samkeppnin frá post-it miðum. "Nei alls ekki. Fólk týnir þessum miðum, en það er allt á sínum stað í fílófaxinu. Það kemst bara svo mikið í þessar spjaldtölvur. Alþingi þarf að gefa FÍFL (Félagi Íslenskra Fílófaxara á Landsvísu) leyfi til að loka fyrir verslanir sem eru með spjaldtölvur."

Eftir því sem næst verður komist hefur lögreglan ekki mannskap til að bregðast strax við ábendingum um sölu spjaldtölva.

"Ætli þessum fáu fílóföxum sem eru eftir verði ekki bara hent. Maður hefur verið að spá í það lengi en svo fer maður nú bara að hætta að vinna hvort sem er."


5 comments
(Arnaldur)




5 comments have been posted
Add Comment | RSS Feed

[ Reply ]

Sveinbjörn at 25.11.2011

Sveinbjörn

Ég verð nú að játa að ég felli ekki svo mikið sem eitt einasta tár yfir hverfandi vídjóleigum landsins. Við lifum á tímum sem eru nokkurn veginn betri fyrir alla NEMA vídjóleigueigendur.

[ Reply ]

Steinn at 25.11.2011

Steinn

Ég held að vídeóleigur á borð við Aðalvídeóleiguna og Laugarásvídeó þurfi ekki að hafa áhyggjur af niðurhali. Svona draslleigur eiga nú bara heima á haugunum ásamt VHS.

[ Reply ]

Steinn at 25.11.2011

Steinn

Lengi lifi filofaxið!

[ Reply ]

Sindri at 29.11.2011

Sindri

Verndum alla vídjóspólubændur, svona eins og alla í landbúnaðinum. Ég legg til að við skattleggjum hvert kb af niðurhali til að vernda þessa stétt.

Annars verð ég að segja það að fílófaxið er nú bara nokkuð handhægt og þægilegt. Mér finnst eiginlega betra að skrifa heldur en að þurfa að pikka allt inn og passa að græjan sé alltaf fullhlaðin. Kannski ég ætti að gerast félagi í FÍFL.

[ Reply ]

Arnaldur at 29.11.2011

Arnaldur

Ég hafði ekki áttað mig á þessari tengingu við hobbý-landbúnað. Well spotted sir.

Og já, það er að mörgu leyti betra að skrifa á pappír...


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment