Það er rosalega 'high-strung' andrúmsloft á íslenskum spjall- og félagssíðum þessa dagana.
Það er mjög mikið af erfiðum og leiðinlegum málum sem fólk er að rífast yfir allan daginn. Það tekur nokkuð á að vera viðstaddur þessa umræðu, jafnvel þótt maður geri í því að reyna að sneyða hjá henni.
Mín upplifun er að einhverskonar ójafnvægi og kom upp í kringum hrunið sé aftur komið á. (Þótt það hafi vissulega aldrei farið neitt. Ég hélt bara að menn væri farnir að sýna meiri stillingu.)
Af og til læt ég ginna mig út í einhverja ranta sem tengjast beint, eða óbeint þessum 'flame-wars' sem eru í gangi.
Maður ætti orðið að vita betur.
Ekki það að ég sjái ástæðu til að endurskoða innihald skrifanna sem ég hef sett fram svo mikið. Heldur meira vegna þess að mér finnst ég ekki nógu skemmtilegur stíllisti þegar ég kemst í svona internet-uppnám.
Þannig virkar t.a.m. pistillinn hér að neðan um kynferðisbrotaumræðuna í samfélaginu frekar langdreginn og óhnitmiðaður og 'hálf-off' einhvern vegin, núna þegar ég les hann aftur.
Næst mun ég reyna að halda mig við regluna um að sitja á textanum mínum í einn dag hið minnsta.
The password to post a comment is: