17.12.2011 | Jóladagatal 2011 - 16. desember

joladagatal2011 16des

Ég gleymdi næstum að setja inn mynd. Allt þetta Landsdómshavarí og fleira höfðu af mér athyglina.

Það er því kannski bara rétt að Bjarni sé jólastjarnan í mynd dagsins. Í tilefni af þessari fallegu gjöf hans til löggjafarsamkundunnar í dag.

Það er kannski líka rétt að rifja upp hans eigin orð um afskipti Alþingis af málum sem eru komin til meðferðar hjá dómstólum:

"Virðulegi forseti. Í hliðarherbergi liggur frammi tillaga til þingsályktunar sem nú er búið að dreifa á þinginu um ákæru á hendur níu mótmælendum fyrir árás á Alþingi. Ég vil nota þetta tækifæri til að lýsa þeirri skoðun minni við hæstv. forseta þingsins að þetta mál er ekki þingtækt. Fyrir utan efnisatriðin, fyrir utan það hversu fráleitt það er að héðan af þinginu berist þau skilaboð til samfélagsins að menn treysti ekki ákæruvaldinu í landinu, að menn hafi einhverjar efasemdir um að dómstólarnir séu bærir til þess að útkljá þau mál sem upp koma, er hér efnislega á ferðinni mál sem augljóslega er ekki þingtækt"

Tekið héðan




0 comments


Add Comment

The password to post a comment is:   

Name
Website
Password
Comment