Results for 2012

17.5.2012 | Málefnalega fólkið

Fólkið í landinu

Ákveðnar auglýsingar eru nú sérlega áberandi í íslensku sjónvarpi. Þetta eru langar auglýsingar sem birtast í nær hverjum auglýsingatíma.

Auglýsingarnar eru fagmannlega unnar, fallegar og áhrifaríkar. Hver auglýsing er einskonar stuttmynd sem reifar sjónarmið "venjulegs fólks" á landsbyggðinni um nýtt frumvarp til laga um stjórn fiskveiða.

Myndin sem dregin er upp, er af harðduglegu, heiðvirðu fólki. Þetta eru sveita-rómantískar auglýsingar. Þarna eru reynsluboltar sem vita tímana tvenna. Þarna er fólk sem vill bara fá að vera í friði og vinna sér og öðrum í haginn. Þarna eru duglegi frændinn utan af landi og ábyrgðarfulli afinn sem tala til okkar.

Á heimasíðu herferðarinnar er þetta fólk titlað "fólkið í landinu". Allt eru þetta reyndar meira og minna óttaslegnir karlmenn í eldri kantinum sem segja nákvæmlega sama óræða hlutinn með mismunandi orðum. Hvort það er raunsæ lýsing á "fólkinu í landinu" skal ósagt látið, en þetta er víst myndin sem dregin er upp.

Enginn þessa karla hefur í raun neitt sérstaklega merkilegt til málanna að leggja. Enginn af þeim sem rætt er við leggur sérstaklega út af frumvarpinu sjálfu. Engin efnisatriði frumvarpsins eru rædd sérstaklega. Ein rödd heyrist úr mörgum munnum. Hún er sú að augljóst sé að vofeiflegir hlutir séu í vændum. Það er þó ekkert útskýrt nánar -- Af því bara.

Einu orði tala þessir menn máli útgerðarmanna. Reyndar er passað skilmerkilega upp á það að fingraför LÍÚ sjáist hvergi á herferðinni, þannig að það er erfitt að slá aðkomu þeirra að málinu fastri. En það skiptir heldur í raun engu máli hvort LÍÚ hefur beina aðkomu að herferðinni eða ekki. Öll eigum við nú að hlusta með athygli á málflutning "fólksins í landinu" sem reynist allt tala máli LÍÚ.

Hitt fólkið

Skiljanlega hefur þessi herferð vakið athygli (enda varla annað hægt með svo mikilli birtingu). Margir eru á öndverðri skoðun á við þá sem birtist í herferðinni og er þá væntanlega ekki "fólkið í landinu".

Þeir sem hafa þannig tjáð sig um herferðina reifa gjarnan svipuð atriði. Sumum blöskrar þessi grímulausi/grímuklæddi áróður. Sumir spyrja sig líka að hverjum nákvæmlega áróðrinum sé beint. Öðrum þykir leitt að sjá "venjulegt fólk" (oft tengt verkalýðshreyfingunni) tala máli fjármagns- og kvótaeigenda.

Um leið og þessi viðbrögð kvikna -- sem gera má ráð fyrir að hafi í og með verið ætlunin að framkalla -- stendur bakslagið ekki á sér. Það er einsleitt: "Hlustaðu á "fólkið í landinu", það talar af reynslu, svona líður því." Fljótlega gera kunnugleg stef vart við sig. Landsbyggð og borg er att saman, eins og hagsmunir þeirra geti aldrei farið saman.

Fólk sem er fylgjandi herferðinni talar gjarnan eins og þeir einir megi tjá sig um þessi mál sem hafa atvinnu af sjávarútveginum, og að sjónarmið annarra séu lítils virði. Aðrir segja að höfuðborgarbúar hafi bjagaða sýn á málaflokkinn, þeir ættu að hafa sig hæga og hlusta á hina óskilgreindu landsbyggð. Hún haldi upp gljálífi höfuðborgarsvæðisins þegar allt komi til alls.

Ef umræðan kemst yfirleitt á þann stað að vissulega megi borgarbúar sem vinni á skrifstofu hafa skoðun á umbúnaði sjávarútvegsmála -- alveg eins og landsbyggðarfólk megi hafa skoðun á staðsetningu flugvallarins í Reykjavík -- þá er ekki ósjaldan bryddað upp á því að ríkisstjórnin og fjölmiðlarnir (sem séu allir vilhollir ríkisstjórninni) hafi bjagað svo myndina að engin rökleg umfjöllun sé líkleg til árangurs. Gjarnan er talað um Icesave, bandaríska repúblíkana, Evrópusambandið og önnur alls óskyld mál til að undirstrika þessa skoðun.

Krafan um málefnalega umfjöllun

Þegar allt er komið í þrot, skýtur hún svo loksins upp kollinum. Krafan um "málefnalegu umfjöllunina". Krafan um "málefnalegu umfjöllunina" er samt ekki alltaf krafa um umfjöllun. Hún er oftar boðun um þöggun. Hún er oftar krafan um að láta einsleitan, órökstuddan áróður óátalinn. Menn setja sig á háan hest og krefjast þess "að borin sé virðing fyrir skoðunum annarra" en í reynd stendur viljinn til þess að engar athugasemdir séu gerðar við gallaðan málflutning.

Þessi krafa kemur svo gjarnan frá fólki sem ber svo litla virðingu fyrir öðrum skoðunum en eigin að það þvingar skoðunum sínum á aðra, í krafti auðs síns. Svona er það alltaf þegar þessu fólki mislíkar eitthvað, eða fær ekki að stjórna ferðinni algerlega eftir eigin höfði. Þá er ekki boðið upp á samræðu. Þá er boðið upp á málflutning -- og þér er hollast að bera virðingu fyrir skoðuninni sem borin er á borð.


4 comments
(Doddi)



6.5.2012 | The 94 Elements

The 94 Elements er heimildarmynda-verkefni sem gengur út á að kortleggja öll frumefnin sem við þekkjum og hvernig þau snerta daglegt líf fólks.

94elements

Þetta er áhugavert verkefni sem verður forvitnilegt að fylgjast með. (Ég verð reyndar að viðurkenna að ég hef svakalega veikan blett fyrir öllu sem viðkemur lotukerfinu, þannig að kannski finnst öðrum þetta ekki jafn tilkomumikið og mér.)

Framtakið er samt virðingarvert, þar sem mörg þessara efna eru af skornum skammti og er sífellt erfiðara að vinna, eftir því sem tíminn líður. Um að gera að festa þetta á filmu sem fyrst.


4 comments
(Sindri)



6.5.2012 | Old Maps Online

Ég var að uppgötva snilldar vef. Old Maps Online er online repository fyrir gömul kort. Maður velur sér landsvæði og vefurinn serverar upp lista af gömlum kortum kostum af viðkomandi svæði.

island old map

Internetið er svo friggin' awesome staður!


1 comments
(Doddi)



3.5.2012 | Séð og heyrt-völvan spáir fyrir um forsetann 2008

Ég var staddur á biðstofu í gær. Þar lenti í þó nokkurri bið. Til að drepa tímann gluggaði ég í nokkur tímarit sem lágu frammi. Flest þeirra voru mjög gömul og lítt spennandi eftir því. -- Dægurmál eru svo gjarnan bara spennandi akkúrat meðan þau gerast.

Að endingu hnaut ég þó um mikinn feng. Það var Séð og heyrt blað frá því í janúar 2008.

Blaðið kemur út á hátindi ósómans, og efnistökin eru mjög lýsandi fyrir tímann. Yfirskriftirnar eru stórfenglegar: "Óspjallaðar meyjar nudduðu nautið!" og "Gisting, gel og galadinner!"

Hápunkturinn er þó umfjöllun blaðsins um komandi forsetakosningar. Glöggir lesendur átta sig á því að engar forsetakosningar voru haldnar árið 2008, en Séð og heyrt-völvan virðist hafa veðjað á að svo yrði. Í stað þess að sætta sig við orðinn hlut, kýs blaðið að fylgja dómi völvunnar og er með mikla umfjöllun um álitlegustu forsetaframbjóðendurna, að mati blaðsins.

Það er mjög merkilegt að sjá þennan lista. (Hægt er að sjá stærri útgáfu, með læsilegum texta, með því að smella á myndirnar.)

sedogheyrt volvan1

sedogheyrt volvan2

sedogheyrt volvan3

2 comments
(Friðrik Steinn)



29.4.2012 | Endalok fransks kvislings

Ég rakst á þetta myndskreytta fréttaskot á timarit.is. Það vakti athygli mína hvað umfjöllunin um þessa aftöku er látlaus og sjálfsögð. Það eru 67 ár síðan þetta var birt.

kvistlingur drepinn

Þetta fær mann kannski til að velta fyrir sér hvort hugtakið "landráðamaður" hafi mögulega verið gengisfellt lítið eitt í dægurþrasinu hérna undanfarið.


3 comments
(Eiki)



26.3.2012 | Flóttinn mikli

Ég skal vera fyrstur til að stíga fram og viðurkenna að ég er allt of latur við að updeita content-ið hérna.

Mér sýnist þessi vandi reyndar ekkert einskorðast við mína síðu. Mér sýnist fólk vera latara við að deila upplýsingum í gegnum hefðbundin vefsvæði. Væntanlega finnst því fljótlegra að deila í gegnum samskiptasvæði, auk þess sem maður fær instant feedback og komment á það sem maður setur inn, sem getur eiginlega verið hálf ávanabindandi.

En ég ætlaði svo sem ekki að gera það upp hérna. Það er efni í annan pistil. Látum það nægja að mér finnst þessi þróun ekki skemmtileg, og ég er persónulega ósáttur við að hafa migrate-að í jafn ríkum mæli yfir á facebook og ég hef gert.

En maður græðir svo sem líka haug af áhugaverðu efni á facebook, sem ellegar færi líklega framhjá manni. Ég rakst um daginn á eina slíka grein, og mér finnst ég knúinn til að deila henni hérna í raunheimum, utan facebook.

Þetta er frásögn eina mannsins sem vitað er til að hafi tekist að sleppa úr Norður-Kóreskum lífstíðar-þrælkunarbúðum. Ég las greinina á föstudaginn, og einhvern vegin hefur hún setið í mér síðan. Mér verður mjög reglulega hugsað til þessarar frásagnar. Þetta er eiginlega lygilegt.


2 comments
(Arnaldur)



23.3.2012 | Þrjátíu og eins árs!

Í dag er ég 31 árs gamall.

Ég var vakinn með afmælisköku í og pökkum í rúmið.

Maður getur nú aldeilis lifað á því fram á sumar.

Húrra!

enter the naldo 31 chambers
Á myndinni má sjá afmælisbarnið, glaðhlakkalegt með eina af gjöfum morgunsins.

7 comments
(Eiki)



21.3.2012 | Arnaldur dæmir athugasemdir á fréttasíðum úr leik

Ég fann þessa færslu hjá mér áðan og fannst hún fyndin. (Neðsta málsgreinin)

Mér fannst hún sérstaklega fyndin þar sem ég vék út af vananum og skrifaði athugasemd við "frétt" fyrr í dag.

Skamm Arnaldur. Skamm...




21.3.2012 | Sorgartár

Ég eyddi klst. í að skrifa pistil hérna áðan.

Mentat át pistilinn.

Núna er hann hvergi að finna.

FML!

---Leiðrétting (fyrir Sveinbjörn)---

Mentat át í raun ekkert, en ákveðin virkni varð þess valdandi að ég klaufaðist til að glata pistlinum.




16.2.2012 | The Dreyfus Affair

Ég skoða gjarnan bókagagnrýnina á Guardian. Mér þykir hún oft nokkuð marktæk og greinagóð og nýlega rakst ég á úttekt á nýrri bók um Dreyfus-málið.

Bókin sjálf virkar reyndar ekkert svo áhugaverð á mig, en þessi samantekt á Dreyfus-málinu í byrjun gagnrýninnar er með því betra sem ég hef lesið í þessum mánuði.

Ég ætla því að leyfa mér að skella því hérna inn.

"It's not exactly a story worthy of John le Carré. On the afternoon of 20 July 1894, a French army officer named Ferdinand Esterhazy walked into the German embassy in Paris and offered to sell secrets to the military attaché, Maximilian von Schwartzkoppen. A month later, Schwartzkoppen received a note from Esterhazy referring to classified material, tore it up, and left the pieces in his wastepaper basket for his French cleaning lady, whom he considered an idiot. She promptly delivered them to French military intelligence. They then sat, unexamined, for a month, because the responsible official, Hubert-Joseph Henry, had left on an extended hunting trip. And when the French finally pieced the note together and realised they had a traitor on their hands, they arrested the wrong man, despite the handwriting evidence that clearly pointed in Esterhazy's direction."


2 comments
(Arnaldur)



5.2.2012 | Lærður og menntaður

Ég var staddur í matarboði í gær þar sem nokkur umræða spannst um hugtökin "lærður" og "menntaður", hvort það væri eiginlega einhver munur á þeim, og ef svo, hver sá munur væri.

Skilningurinn sem ég hef yfirleitt lagt í þessi hugtök er eitthvað á þá leið að maður læri ákveðna hluti, og verði þannig menntaður á því sviði.

Í mínum huga er menntun stærra hugtak sem felur í sér yfirgripsmikla þekkingu sem maður getur unnið með á skapandi hátt.

Á sama hátt er lærdómur þrengra hugtak sem gildir um að tileinka sér ákveðna tækni, vinnubrögð eða hugmyndir, hvort heldur sem er eitt og sér eða í stærra samhengi.

Nú tölum við samt um "lærða iðnaðarmenn" og "löglærða menn". Hér virðist hugtakið "lærður" vera notað til jafns á við "menntaður". Þetta veldur ákveðunum ruglingi ef maður gengst inn á þessar grófari skilgreiningu sem ég set fram að ofan.

Ég velti því fyrir mér hvort það sé kannski enginn munur á þessu tvennu? Það væri gaman að heyra hugmyndir annarra um þetta.


6 comments
(Sigurgeir Þór)



2.2.2012 | Orkutölur

Í kjölfar færslunnar hér að neðan langaði mig til að benda áhugasömum á Orkusetrið.

Þar eru alls kyns hagnýtar upplýsingar um orkuframleiðslu og notkun á Íslandi.

Ég get alveg tapað mér í að glápa á Orkuteljarann sem er til hægri á síðunni.

Magnað alveg hreint...




2.2.2012 | Orkustefna fyrir Ísland

Ég ákvað að renna yfir Orkustefnu fyrir Ísland sem var aðeins mótuð tiltölulega nýlega og kom út í fyrra.

Reyndar er algerlega ótrúlegt að það hafi ekki legið fyrir heildstæð orkustefna hér á landi - Ísland er einn stærsti orkunotandi heims ef miðað er við höfðatölu.

Skýrslan er nokkuð áhugaverð og sérlega vel unnin. Markmiðin sem höfð hafa verið að leiðarljósi þykja mér göfug og ýmis drög eru lögð að sporum í heillavænlega átt (s.s. minnkun á notkun kolefnis-eldsneytis).

Það er samt ýmislegt þarna sem kom mér beinlínis á óvart að sjá. Til að mynda vissi ég að raforkunotkun heimila væri tiltölulega lítill hluti af raforkunni sem er framleidd hér á landi, en að það væri svona agnar-smár hluti (5%) vissi ég ekki. Það er ekki laust við að það komi upp hjá manni ónotakennd.

orkunyting2

Maður hlýtur í kjölfarið að velta fyrir sér gjaldskrárhækkunum Orkuveitunnar, og hversu litlu þær hljóta að skila í stóra samhenginu.

Ennfremur verð ég að segja að myndin hér að neðan trufli mig. Hér má sjá heildar núverandi orkuframleiðslu, það sem stendur til að nýta, og mögulegan biðflokk (skv. drögum að rammaáætlun).
Biðflokkur þýðir væntanlega flokkur sem stendur til að kroppa í hægt og bítandi yfir lengri tíma.

orkunyting1

Ef maður skoðar orkunotkun á almennum markaði í samhengi við þessar stórkallalegu fyrirætlanir, fallast manni eiginlega hendur. Hver á eiginlega að nota alla þessa orku?


2 comments
(Arnaldur)



20.1.2012 | Twin Peaks Playing Cards

Ég hef lengi verið mikill aðdáandi sjónvarpsþáttanna Tvídranga (e. Twin Peaks) og öllu sem þeim tengist. Nú eru reyndar sennilega orðin eitthvað um 10 ár síðan ég horfði síðast á seríurnar (og FWWM), en ég ætla að bæta úr því á allra næstu dögum.

tpcard back590px

Ég tók mig til á dögunum og útbjó spilastokk sem er innblásinn af Twin Peaks þáttunum, enda er þar af nógu að taka; hvort sem maður sækir í karakter galleríið, umgjörð þáttanna, eða symbólíkina sem birtist manni.

Reyndar er ekki um fullbúinn 52 spila stokk að ræða (enn sem komið er). Ég lét mér nægja að gera nokkur mannspil, Jókera, og eitt talnaspil. Svo er auðvitað líka bakhliðin klár, en ég byrjaði að sjálfsögðu á henni.

tpcards lineup

Ég var nokkuð ánægður með heildarútkomuna, þótt viss spil séu í meira uppáhaldi hjá mér en önnur. T.a.m. hefði mér þótt drottningar-spilið mátt heppnast betur, og ásinn kom ekki sérlega vel út þegar ég blekaði hann.

Aftur á móti þótti mér bakhliðin heppnast betur en ég átti von á, og ég er sérdeilis ánægður með annan jókerinn ('The Man from Another Place').

tpcard joker590px

Upphaflega ætlaði ég að gera öllum sortunum skil, en ég ákvað viljandi að bíða með tígulinn. Ég gat ekki ákveðið mig með það hvernig ég vildi útfæra þá sort, þótt að ég sé nú eiginlega kominn að endanlegri niðurstöðu núna.

Ef ég klára einhverntíman stokkinn, þá kannski framleiði ég nokkur eintök. Áhugasamir um eineygða gosann geta þá haft samband.

Twin Peaks aðdáendur, njótið!


4 comments
(Tryggvi)



20.1.2012 | Hyperbole

Umfjöllun DV um Maze, veitingastað Gordon Ramsey í London:

"Það er þó alla jafna ekki gefið að snæða á einum af veitingastöðum hans. Kostar ódýr réttur árslaun verkamanns í Bangladess og ef fram heldur sem horfir árslaun verkamanns á Íslandi."


Pistill Markúsar Möllers, um þrautargöngu Geirs Haarde:

"Hið seinna, þroskun með hirtingu, hljómar eins og kynningarmyndband fyrir Abu Ghraib: Kannski þeir vatnsbrettuðu hafi bara fengið einstök tækifæri til að sanna sakleysi sitt."


Reyndar er gaman að fá eitthvað nýtt og ferskt inn í þennan samanburð sem hefur lengi einskorðast við N-Kóreu og Kúbu.




12.1.2012 | Artistic Containerization

Var að skoða gömul tímarit þegar ég rakst á þessa skemmtilegu auglýsingu frá Eimskipum.


eimskip1982

Það sem fangaði fyrst athygli mína var að sjálfsögðu hakakrossinn, og tilheyrandi vangaveltur um hvernig hann hefði náð að lifa svona lengi af sem merki fyrirtækisins.

Svo reyndar fór ég að spá í hvað það er ótrúlega undarlegt fyrir fragtflutningafyrirtæki að setja gáma í aðalhlutverk í auglýsingu. Það er dálítið eins og ef matsölustaður kysi að auglýsa sig útfrá borðbúnaðinum sem væri á staðnum, en ekki þjónustunni eða matseldinni.

Að lokum áttaði ég mig þó á því hver snilldin við þessa auglýsingu er: Þegar hugsað er til hins ómetanlega tjóns á íslenskri nútímalist sem varð við búslóðaflutninga Skapta Jónssonar sendiherra, er náttúrulega kostulegt að sjá fyrirtækið sem stóð fyrir flutningunum auglýsa "Artistic containerization".


1 comments
(Eiki)



12.1.2012 | Biluð upptaka

Vefstjóri RÚV: -"Æi, fokk. Ég fæ þessa upptöku ekki til að virka. Hvað á ég að gera? Ég veit. Ég bý bara til nýjan button..."


biludupptaka



6.1.2012 | GEIM-SLUR

Ég rakst á síðuna geymslur.com í gær.

Það sem Geymslur - Self Storage Center hefur sérstaklega fram að færa er sérdeilis (hlægilega) illa máli farna heimasíðu. Ég læt skjáskotið tala sínu máli.

Reyndar spyr ég mig líka út í raunverulega merkingu hugtaksins "Self Storage Center", en látum það svo sem liggja milli hluta.

Gleiðleg Jól!


geymslurpunkturcom

Cheers to professionalism!


1 comments
(Steinn)



6.1.2012 | Of stórt og þungt

Það er mjög mikilvægt að halda því til haga að 'of þungir' er ekki það sama og 'of stórir og feitir'. Allt annað leiðir bara til misskilnings.


ofstorir2

Svo er líka mikilvægt að koma dýraníðinni að...




6.1.2012 | No, you don't understand. I need the full texti.

Vinnubrögð forsætisráðuneytisins eru fagleg sem endranær.


full texti

Reyndar verður að segjast að ensku hlutar stjórnarráðsvefsins eru almennt afskaplega slappir. Þeir birta seint og þeir birta illa.